Jæja þá er ég kominn í heiminn og ég er strákur. Fæddist þann 13.04.04 kl:10:49. Var 4130 gr og 51 cm semsagt 16 1/2 merkur. Ég kom í heiminn með keisaraskurði því að ég var sitjandi en allt gekk rosalega vel. Mamma og pabbi eru alveg í skýjunum og geta ekki hætt að horfa á mig.
Mamma mín og pabbi heita Halldóra (1977) og Tyrfi (1976) svo á ég lítinn bróðir sem heitir Sigurður Ísak (2006) og litla systur sem heitir Ingibjörg Svava (2008). Endilega kíkið í myndaalbúmið þar sem mín fyrsta sónar-mynd er :-) og fullt af myndum af mér.
Einnig er hægt að skoða vefdagbókina mína þar sem að mamma, pabbi og ég skrifum.
Ég á margar ömmur og afa. í Föðurætt þá heitir afi minn Þorsteinn Guðni eins og ég (Steini afi) og amma mín Ingibjörg Sigríður (Inga amma). Langafi minn Kobbi og langamma Nína.
Í móðurætt þá heitir afi minn Hreinsi og amma mín Svava, svo á ég svona auka afa ekkert smá heppinn hann er maðurinn hennar ömmu og heitir Kristján afi. Langamma mín heitir Halldóra og er kölluð Dolla amma.
Svo á pabbi minn 2 bræður, þeir heita Einar (1981) og hann á kærustu sem heitir Dódí (1983) og þau eiga strák sem heitir Þór (2002) stóri frændi og eina stelpu sem heitir Adda Þorbjörg (2004). Rúnar (1983) á kærustu sem heitir Eybjörg (1984) og þau eiga litla stelpu sem heitir Þorbjörg Elísabet (2004).
Svo á mamma 3 bræður, þeir heita Bogi (1980) og hann á kærustu sem heitir Sigurrós (1980). Eyþór (1991). Bjarni (1993).
Svo á ég langafa og langömmur sem að fylgjast með mér hinum megin frá og passa mig voða vel. Þau heita, Tyrfingur langafi, Beta langamma, Siggi langafi, Lára langamma, Kalli langafi og Bogi langafi. :-)
